8.1.2009 | 21:35
11. vikan gengin í garð
Gleðilegt nýtt ár allir saman!
Jólin mín voru rosalega fín. Aðfangadagskvoldið var ekkert mjog hátíðlegt, fórum nú samt yfir til systur Lauru í mat. En jóladagurinn var mjog skemmtilegur, það voru í kringum 20 manns og fullt af spenntum krokkum að opna jólapakka. Ég fékk ekkert smá margar gjafir og ég þakka ollum kærlega fyrir mig! Við sátum alveg í 3 eða 4 tíma við matarborðið og allir borðuðu eins og herforingjar allan tímann. Ekkert smá sem ítalir geta í sig látið hehe
Svo kom Ástrós til mín 26. des og var hjá mér þangað til 29.. Þá fórum við til fjolskyldunnar hennar sem á hús rétt fyrir utan Flórens og gistum þar í eina nótt, en logðum svo af stað til Torínó snemma morguns 30. desember. Við hofðum húsið í Torínó alveg útaf fyrir okkur sem var æðislegt. Það leið varla kvold sem við kíktum ekki eitthvað aðeins út á lífið, ætluðum yfirleitt bara út og fá okkur einn drykk en þeir voru nú alltaf fleiri.
Áramótin okkar voru stórskemmtileg. Við elduðum okkur Tortelini í forrétt, Lambafillet (ekki alveg viss hvernig maður skrifar þetta) í aðalrétt og auðvitað með salat og rauðvín með, og svo var ís í eftirrétt en hann gleymdist alveg því við vorum orðnar alltof seinar í áramótapartý hjá nokkrum Írum sem við hofðum kynnst kvoldið áður. Við fórum í partý og svo fórum við oll saman niður að torginu og horfðum á flugeldasýninguna. Eftir það var farið á Shamrock (eins og flest onnur kvold hehe) þar sem við tókum á móti nýja árinu með stæl. Við hittum einn ótrúlegan strák, við vorum inná baði að spjalla saman þá kemur ítalskur strákur til okkar sem talaði íslensku! Það er erfitt að finna Ítali sem tala ensku, hvað þá íslensku. Hann var nú enginn íslenskumeistari en það var gaman að þessu. Hann líka trúði því ekki að hann hafi hitt íslenskar stelpur, hann sagði alltaf aftur og aftur; I didn't meet one icelandic girl, I met two icelandic girls!!
Svo var ferðinni heitið til Milanó 5. janúar, því Laura og Nicola (mamman og pabbinn í fjolskyldunni minni) gáfu mér og Ástrósu hótelgistingu í Milanó í jólagjof. Það var æðislegt þar, týndumst smá í Metróunum, en það reddaðist. Verslunargatan þarna er auðvitað æðisleg! Verst að ég átti ekki pening til að versla mér neitt :( Þegar við voknuðum á þriðjudaginn var svo allt á kafi í snjó, þetta var fyrsti almennilegi snjórinn sem ég sá á Ítalíu svo ég varð kát eða þangað til að ég fattaði að ég var í Converse skóm sem eru verstir í heimi í snjó.
Ég er að fara að byrja í nýjum skóla núna í janúar. Hinn skólinn var ekki alveg að ganga fyrir mig, þessi er 4 sinnum í viku, í tæpa tvo mánuði og hann er bara alveg í centerinu.. Sirka 5 mín frá Dómkirkjunni.
Ég set síðan inn myndir annað hvort í kvold eða morgun, þær eru ekki margar... en nokkrar.
Athugasemdir
Hæ elskan :) Svo gaman að lesa bloggin þín frá Ítalíu.
En bara kvitta fyrir mig,
Love, Guðbjörg Eva :*
Guðbjörg Eva (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 16:56
Bravó..
Ekkert smá gaman að fylgjast með, hlakka til að sjá myndirnar!;*
Fríða Dís (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 18:00
Hæ hæ mýslan mín. Ekkert smá gaman hjá ykkur vinkonunum. Já já fá fullt af myndum. Elska þig mamma.
Guðrún Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 13:30
Þetta er flott systa, endilega að halda áfram að sk1.1236204823.1230831186.1231844238.5
Pálmar (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 10:59
hæhæ. Ég rakst á síðuna þína á vafri um netið og ég er nefnilega mikið að íhuga að fara se au pair og langar mikið að fara til ítalíu, var bara að velta því fyrir mér hvort þú hafir farið í gegnum einhver sérstök samtök?
kveðja
Þórdís (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 22:38
Nei, ég fór ekki í gegnum nein samtok en ef þú villt fá einhverjar upplýsingar máttu endilega hafa samband við mig á saerun123@hotmail.com :)
Særún (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.