23.12.2008 | 18:37
8 vikur.
Jæja, nú eru akkurat 8 vikur síðan ég kom til Pastalandsins. Tíminn er búinn að vera brjálæðislega fljótur að líða, flýgur bara áfram. Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, enda komnar 4 vikur síðan. (Þarf að vera duglegri að blogga)
Ástrós kom til mín í byrjun desember og við skemmtum okkur konunglega saman, eins og alltaf. Við fórum að djamma niðrí Flórens og þar hittum við ÆÐISLEGAN strák, hann var fullkominn. Ótrúlega sætur, skemmtilegur, ekkert smá gaman að tala við hann, og hann hlustaði meira að segja líka (og svo var hann í Converse skóm, sem er alltaf plús) Ég var farin að hugsa að þetta væri sko draumaprinsinn minn... En þetta var of gott fyrir að vera satt, hann skrapp aðeins í burtu og þegar hann kom aftur kynnti hann okkur fyrir kærastANUM sínum. Það hlaut að vera. Þeir voru æðislegir! En við Ásrtós rombuðum á gotu sem ég hafði aldrei áður farið á, og hafði ekki hugmynd um. En þetta er semsagt risastór verslunargata með fullt af flottum búðum. Verst að maður er á skítalaunum og getur varla leyft sér neitt hehe.
Ég er búin að vera rosalega dugleg að skoða Bagno A Ripoli sem er semsagt bærinn sem ég á heima í, (ég bý reyndar aðeins fyrir utan) En Bagno A Ripoli er samt partur af Flórens. Ég hélt að þetta væri kannski 2000 manna bær bara svipaður og Sandgerði en svo kíkti ég á Wikipedia og sá að það búa í kringum 24.000 manns hér. En þetta er rosa ítalskur bær, hef eigilega meira gaman af honum en Flórens. Þó það sé nú alveg ótrúlega fallegt þar.
Það gengur alltaf betur og betur í skólanum, þó það sé nú ennþá drulluerfitt. Það er svo erfitt að hún kenni bara á ítolsku, og þetta er ekki alveg það sem ég þarf á að halda því við erum bara að læra málfræði og að beygja orð sem ég veit ekki einu sinni hvað þýða. Ég er að spá í að leita mér að oðrum skóla eftir áramót, kannski bara í einn mánuð svona til að læra grundvallaratriðin... þó ég þurfi að borga eitthvað smá.
Ég fór til Torinó um helgina, frá fostudegi til mánudags svo við Ástrós áttum langa helgi saman. Það var rosalega gaman og roosalega mikið hlegið hehe...... Ég verslaði mér yndislega kápu. (með kortinu mínu svo hún var dýrari en ég hélt, maður er ennþá svo vitlaus í þessum evrumálum) En svo kemur Ástrós til mín á fostudaginn og verður hjá mér þangað til 30. eða 31. og þá fer ég með henni til Torino þar sem við holdum áramótin saman :)
Mig dreymdi æðislegan draum í nótt. Ég var hérna (sem er nýtt, því yfirleitt dreymir mig eins og ég sé einnþá heima á Íslandi) En já ég var nýbúin að vinna og var komin niður þegar Laura kallar á mig og byður mig aðeins að hjálpa sér. Ég fer upp og er eitthvað að dúllast þarna þegar það er bankað og Laura byður mig að fara til dyra.. Ég fer til dyra og þar stendur mamma, hún var komin til að halda jólin með mér. Ég hef aldrei verið jafn ánægð og ég var þarna. Ég hef oft verið gloð að sjá mommu, en aldrei jafn glod og ég var þarna. Ég held að ég sé bara orðin pínu smeyk, þetta verða auðvitað fyrstu jólin mín án fjolsyldunnar minnar svo þetta verður skrítið, en orugglega gaman.
En ég vil óska ykkur gleðilegra jóla og ég þakka kærlega fyrir stundirnar á árinu sem er að líða og ég hlakka svo til að hitta alla aftur í sumar!
Jólakveðja,
Særún
Athugasemdir
Ég get ýmindað mér að þú hafir verið ánægð að sjá mömmu þína í draumnum :)
En allavega, þá er ekkert smá gaman að breyta til um jólin og vera ekkert alltaf heima á Íslandi, þetta verða örugglega alveg ógleymanleg jól hjá þér :)
En gleðileg jól elsku Særún mín og hafðu það sem allra best yfir hátíðarnar á Ítalíu. Takk fyrir allar stundirnar á árinu sem er að líða :)
Love, Guðbjörg Eva.
Guðbjörg Eva (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 18:55
oh loksins blogg:) æðislegt að lesa bloggin þín ástin mín, helst bara eitt blogg á dag takk!!!
ég get ekki beðið eftir að hitta þig, verður aðeins of ljúft! ég fer örugglega að gráta úr gleði :)
heyri í þér Særún mín;*
Signý Eva (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 01:53
Jóla, jóla, jóla...
Sakna þín ótrúlega mikið, hlakka til að heyra í þér á morgun eins mikið jólabarn og þú ert! ;*
Þú verður bara að taka ein Jamiroquai dansinn fyrir alla þarna úti fyrst við getum ekki tekið hann saman hahaha...
Fríða Dís (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 03:35
Elsku Særún okkar, Gleðileg jól og farsælt nýtt ár!
Hafðu það gott þarna úti, njóttu lífsins og brostu ;) Mamma þín kom í smá kaffi áðan og við höldum að hún hafi ábyggilega bara farið á hugarflug til þín... þarna í draumnum þínum.. hún talaði svo mikið um þig :)
Við elskum þig og hlökkum til að sjá þig í sumar, kveðja Fjölskyldan á Ásabraut 13.
Bibba, Gunna Lísa og hinir :) (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 14:54
Mamma var að rifja upp í dag þegar hún fékk að passa þig þegar þú varst tveggja mánaða í sólahring (Ég man líka eftir þessu) og um nóttina þá vakti mamma alla nóttina, var alltaf að gá hvort þú andaðir, en þú svafst eins og engill alla nóttina ;) Og skrítið að núna ertu orðin 18.ára.
Gunna Lísa (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 14:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.