Akkurat 4 vikur

Buona sera!

Í dag eru akkurat 4 vikur síðan ég kom til Ítalíu og allt gengur ótrúlega vel. Ég er svona ennþá að jafna mig eftir helgina sem var alveg æðisleg. Ég fór til Torino að hitta Ástrósu og við skemmtum okkur konunglega! Ég tók lestina til hennar strax eftir vinnu á fosudaginn (tók mér semsagt frí á laugardaginn) og það var auðvitað fjagra tíma ferð í lest, en ég var með tolvuna með mér og horfði á friends á meðan. Við fórum beint heim til hennar og gerðum okkur reddí til að fara niður í bæ. Kvoldið byrjaði reyndar frekar kjánalega, fórum á vitlausa staði og fórum svo á stað þar sem var svo dýrt að við hofðum varla efni á því að standa þar fyrir utan en svo loksins fórum við á ódýran pöbb og svo á annan ennþá skemmtilegri stað með æðislegri tónlist.

Seinna kvoldið var samt alveg frábært. Það byrjaði reyndar kjánalega líka fyrst.. áttum að mæta heim til Charlotte kl. hálf 10 en you know us.. Við mættum þangað um 12 leitið því við erum bara alltaf seinar! En við skemmtum okkur alveg konunglega! Svo fannst okkur alveg rosalega fyndið, við fórum inná klósett á einum staðnum... búnar að drekka svolítið mikið... (sorry mamma hehe) og við vorum að spjalla frekar alvarlega um svolítið. Svo ætla ég að fara aðeins að laga meikup-ið og ég opna toskuna mína og legg hana ofan í vaskinn, þá heyri ég Ástrósu kalla ; Nei Særún!! Snertiskynjari, snertiskynjari!! Ég hef ekki hugmynd um hvað hún er að tala um fyrr en ég sé að veskið mitt er orðið hundblautt! Við lágum alveg í krampakasti í gólfinu oskrandi aftur og aftur ; Snertiskynjari, snertiskynjari alveg grenjandi úr hlátri og auðvitað skyldi enginn orð af því sem við vorum að segja hehe.. En þetta var ekki jafn fyndið daginn eftir þegar ég gat ekki kveikt á myndavélinni minni sem ég hafði fengið daginn áður!

Þannig byrjaði sunnudagurinn sem var ekki alveg jafn frábær og hinir 2 dagarnir, það tók mig 3 tíma að sofna því mér var svo hræðilega kalt, ég sofnaði ekki fyrr en kl.10, sama tíma og vekjaraklukkan hringdi því við ætluðum að reyna að eyða sem mestum tíma saman. Mér tókst að sofa í 2 tíma og vaknaði þá alveg grautþunn og orugglega með bullandi hita! Þá mundi ég eftir myndavélinni og hún virkaði ekki, svo ætlaði ég að kíkja á símann minn og þá fattaði ég að ég hafði skrifað pin númerið og oft inn á fostudagskvoldinu að ég þurfti að skrifa inn puk númerið og ég mundi það auðvitað ekki, svo ég hringdi í Lauru og ætlaði að byðja hana um að finna það fyrir mig en þá var hún stodd í Bologna. Frábært! Jæja, hugsaði ég.. dagurinn getur nú ekki orðið verri.. En jæja, ég var næstum því búin að missa af lesinni til Milanó (Þurfti að fara til Mílanó og skipta um lest þar og fara þaðan til Flórens) En ég náði henni og allt í góðu, þangað til á lestastoðinni í Mílanó. Ég átti að taka lest þaðan kl. 18, og alls ekki seinna því ef ég myndi fara seinna myndi ég missa af síðasta strætónum í Flórens.. Ég kíki á tofluna og fatta að ég hef ekki hugmynd um hvaða lest ég á að taka og ég hef bara 10 mínútur, ekki með neinn síma! Svo sé ég Firenze á toflunni og hún lest á að fara kl. 18:30 og það er of seint fyrir mig því þá missi ég auðvitað af strætónum, en svona er þetta. Eg bíð þangað til kl. 18:30 og labba að hliðinu sem lestin á að koma en þá sá ég einhverja allt aðra lest koma þangað og ég varð alveg rugluð, spurði eitthvað fólk um hjálp og þá var mér sagt að ég hefði átt að taka lestina til Róma og vitleysingurinn ég auðvitað búin að missa af henni. Svo ég hljóp niður í miðaafgreiðsluna og fékk að skipta miðanum yfir í kl. 19. Þá komst ég í lestina (fékk reyndar ekki sæti) og þá fatta ég að Nicola ætlaði að sækja mig uppá strætóskýli og ég gat ekki látið þau vita að ég yrði sein því ég var ekki með síma. Ég var alveg með í maganum. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til Flórens var að fara í tíkallasíma og hringja í Ástrósu og láta hana hringja í Lauru og segja að ég væri að fara að taka taxa uppá strætóskýli því ég mundi ekki númerið hjá henni. En þetta endaði allt ágætlega, fyrir utan það að ég þurfti að borga 23 evrur í helvítis taxann!

Mánudagurinn fór í svefn! Ég vann frá 8 til 2, ætlaði að leggja mig frá 5 til 8.. En vaknaði ekki fyrr en mamma hringdi í mig kl. 11, ég hélt að klukkan væri bara svona 7 eða 8 svo þegar ég skellti á ætlaði ég að klæða mig í peysu og kíkja upp. En kíkti þá á klukkuna og klukkan að verða hálf 12! Þá kallaði Laura á mig og sagði að hún hafi kallað á mig í mat en að ég hafi verið sofandi svo ég fór upp og borðaði kvoldmatinn minn þá. En myndavélin lagaðist og ég náði netinu í yndislegu tolvuna mína loksins og þessi dagur var mun betri en sunnudagurinn hehe

Annars er bara miðvikudagur á morgun, ótrúlegt hvernig tíminn flýgur áfram. Helgin mín verður reyndar óspennandi, verð að passa bæði fostudags og laugardagskvold. En helgin eftir það verður skemmtileg því þá kemur Ástrós baby til Flórens! :)

Jæja komið gott í bili.. Eru komnar fult af nýjum myndum á www.myspace.com/saerungudm

Ciao!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öfund! ég öfunda þig svo alltof mikið að það eru engin orð sem fá þessu llýst sko!!! En já, heheh aðeins fyndnara með veskið þitt!!

 Skemmtu þér svo bara ótrúlega vel og hafðu það gott þarna Særún mín:) 

Veiga (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 22:58

2 identicon

4 vikur my ass!

Mér finnst eins og þú sért búin að vera í 4 vikur!:(

Komdu HEIM! hahahahaha ;*

Fríða Dís (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 23:00

3 identicon

ahahaha þetta átti að vera:

Mér finnst þú vera búin að vera í 4 mánuði.

Afsakið ritmistökin!

Fríða (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 23:01

4 identicon

Hæ sætasta frænka, bara að láta þig vita hvað við söknum þín. Knús Emilía og Þorbergur.

Emilía og Þorbergur (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband