Færsluflokkur: Bloggar
8.1.2009 | 21:35
11. vikan gengin í garð
Gleðilegt nýtt ár allir saman!
Jólin mín voru rosalega fín. Aðfangadagskvoldið var ekkert mjog hátíðlegt, fórum nú samt yfir til systur Lauru í mat. En jóladagurinn var mjog skemmtilegur, það voru í kringum 20 manns og fullt af spenntum krokkum að opna jólapakka. Ég fékk ekkert smá margar gjafir og ég þakka ollum kærlega fyrir mig! Við sátum alveg í 3 eða 4 tíma við matarborðið og allir borðuðu eins og herforingjar allan tímann. Ekkert smá sem ítalir geta í sig látið hehe
Svo kom Ástrós til mín 26. des og var hjá mér þangað til 29.. Þá fórum við til fjolskyldunnar hennar sem á hús rétt fyrir utan Flórens og gistum þar í eina nótt, en logðum svo af stað til Torínó snemma morguns 30. desember. Við hofðum húsið í Torínó alveg útaf fyrir okkur sem var æðislegt. Það leið varla kvold sem við kíktum ekki eitthvað aðeins út á lífið, ætluðum yfirleitt bara út og fá okkur einn drykk en þeir voru nú alltaf fleiri.
Áramótin okkar voru stórskemmtileg. Við elduðum okkur Tortelini í forrétt, Lambafillet (ekki alveg viss hvernig maður skrifar þetta) í aðalrétt og auðvitað með salat og rauðvín með, og svo var ís í eftirrétt en hann gleymdist alveg því við vorum orðnar alltof seinar í áramótapartý hjá nokkrum Írum sem við hofðum kynnst kvoldið áður. Við fórum í partý og svo fórum við oll saman niður að torginu og horfðum á flugeldasýninguna. Eftir það var farið á Shamrock (eins og flest onnur kvold hehe) þar sem við tókum á móti nýja árinu með stæl. Við hittum einn ótrúlegan strák, við vorum inná baði að spjalla saman þá kemur ítalskur strákur til okkar sem talaði íslensku! Það er erfitt að finna Ítali sem tala ensku, hvað þá íslensku. Hann var nú enginn íslenskumeistari en það var gaman að þessu. Hann líka trúði því ekki að hann hafi hitt íslenskar stelpur, hann sagði alltaf aftur og aftur; I didn't meet one icelandic girl, I met two icelandic girls!!
Svo var ferðinni heitið til Milanó 5. janúar, því Laura og Nicola (mamman og pabbinn í fjolskyldunni minni) gáfu mér og Ástrósu hótelgistingu í Milanó í jólagjof. Það var æðislegt þar, týndumst smá í Metróunum, en það reddaðist. Verslunargatan þarna er auðvitað æðisleg! Verst að ég átti ekki pening til að versla mér neitt :( Þegar við voknuðum á þriðjudaginn var svo allt á kafi í snjó, þetta var fyrsti almennilegi snjórinn sem ég sá á Ítalíu svo ég varð kát eða þangað til að ég fattaði að ég var í Converse skóm sem eru verstir í heimi í snjó.
Ég er að fara að byrja í nýjum skóla núna í janúar. Hinn skólinn var ekki alveg að ganga fyrir mig, þessi er 4 sinnum í viku, í tæpa tvo mánuði og hann er bara alveg í centerinu.. Sirka 5 mín frá Dómkirkjunni.
Ég set síðan inn myndir annað hvort í kvold eða morgun, þær eru ekki margar... en nokkrar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.12.2008 | 18:37
8 vikur.
Jæja, nú eru akkurat 8 vikur síðan ég kom til Pastalandsins. Tíminn er búinn að vera brjálæðislega fljótur að líða, flýgur bara áfram. Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, enda komnar 4 vikur síðan. (Þarf að vera duglegri að blogga)
Ástrós kom til mín í byrjun desember og við skemmtum okkur konunglega saman, eins og alltaf. Við fórum að djamma niðrí Flórens og þar hittum við ÆÐISLEGAN strák, hann var fullkominn. Ótrúlega sætur, skemmtilegur, ekkert smá gaman að tala við hann, og hann hlustaði meira að segja líka (og svo var hann í Converse skóm, sem er alltaf plús) Ég var farin að hugsa að þetta væri sko draumaprinsinn minn... En þetta var of gott fyrir að vera satt, hann skrapp aðeins í burtu og þegar hann kom aftur kynnti hann okkur fyrir kærastANUM sínum. Það hlaut að vera. Þeir voru æðislegir! En við Ásrtós rombuðum á gotu sem ég hafði aldrei áður farið á, og hafði ekki hugmynd um. En þetta er semsagt risastór verslunargata með fullt af flottum búðum. Verst að maður er á skítalaunum og getur varla leyft sér neitt hehe.
Ég er búin að vera rosalega dugleg að skoða Bagno A Ripoli sem er semsagt bærinn sem ég á heima í, (ég bý reyndar aðeins fyrir utan) En Bagno A Ripoli er samt partur af Flórens. Ég hélt að þetta væri kannski 2000 manna bær bara svipaður og Sandgerði en svo kíkti ég á Wikipedia og sá að það búa í kringum 24.000 manns hér. En þetta er rosa ítalskur bær, hef eigilega meira gaman af honum en Flórens. Þó það sé nú alveg ótrúlega fallegt þar.
Það gengur alltaf betur og betur í skólanum, þó það sé nú ennþá drulluerfitt. Það er svo erfitt að hún kenni bara á ítolsku, og þetta er ekki alveg það sem ég þarf á að halda því við erum bara að læra málfræði og að beygja orð sem ég veit ekki einu sinni hvað þýða. Ég er að spá í að leita mér að oðrum skóla eftir áramót, kannski bara í einn mánuð svona til að læra grundvallaratriðin... þó ég þurfi að borga eitthvað smá.
Ég fór til Torinó um helgina, frá fostudegi til mánudags svo við Ástrós áttum langa helgi saman. Það var rosalega gaman og roosalega mikið hlegið hehe...... Ég verslaði mér yndislega kápu. (með kortinu mínu svo hún var dýrari en ég hélt, maður er ennþá svo vitlaus í þessum evrumálum) En svo kemur Ástrós til mín á fostudaginn og verður hjá mér þangað til 30. eða 31. og þá fer ég með henni til Torino þar sem við holdum áramótin saman :)
Mig dreymdi æðislegan draum í nótt. Ég var hérna (sem er nýtt, því yfirleitt dreymir mig eins og ég sé einnþá heima á Íslandi) En já ég var nýbúin að vinna og var komin niður þegar Laura kallar á mig og byður mig aðeins að hjálpa sér. Ég fer upp og er eitthvað að dúllast þarna þegar það er bankað og Laura byður mig að fara til dyra.. Ég fer til dyra og þar stendur mamma, hún var komin til að halda jólin með mér. Ég hef aldrei verið jafn ánægð og ég var þarna. Ég hef oft verið gloð að sjá mommu, en aldrei jafn glod og ég var þarna. Ég held að ég sé bara orðin pínu smeyk, þetta verða auðvitað fyrstu jólin mín án fjolsyldunnar minnar svo þetta verður skrítið, en orugglega gaman.
En ég vil óska ykkur gleðilegra jóla og ég þakka kærlega fyrir stundirnar á árinu sem er að líða og ég hlakka svo til að hitta alla aftur í sumar!
Jólakveðja,
Særún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.11.2008 | 21:41
Akkurat 4 vikur
Buona sera!
Í dag eru akkurat 4 vikur síðan ég kom til Ítalíu og allt gengur ótrúlega vel. Ég er svona ennþá að jafna mig eftir helgina sem var alveg æðisleg. Ég fór til Torino að hitta Ástrósu og við skemmtum okkur konunglega! Ég tók lestina til hennar strax eftir vinnu á fosudaginn (tók mér semsagt frí á laugardaginn) og það var auðvitað fjagra tíma ferð í lest, en ég var með tolvuna með mér og horfði á friends á meðan. Við fórum beint heim til hennar og gerðum okkur reddí til að fara niður í bæ. Kvoldið byrjaði reyndar frekar kjánalega, fórum á vitlausa staði og fórum svo á stað þar sem var svo dýrt að við hofðum varla efni á því að standa þar fyrir utan en svo loksins fórum við á ódýran pöbb og svo á annan ennþá skemmtilegri stað með æðislegri tónlist.
Seinna kvoldið var samt alveg frábært. Það byrjaði reyndar kjánalega líka fyrst.. áttum að mæta heim til Charlotte kl. hálf 10 en you know us.. Við mættum þangað um 12 leitið því við erum bara alltaf seinar! En við skemmtum okkur alveg konunglega! Svo fannst okkur alveg rosalega fyndið, við fórum inná klósett á einum staðnum... búnar að drekka svolítið mikið... (sorry mamma hehe) og við vorum að spjalla frekar alvarlega um svolítið. Svo ætla ég að fara aðeins að laga meikup-ið og ég opna toskuna mína og legg hana ofan í vaskinn, þá heyri ég Ástrósu kalla ; Nei Særún!! Snertiskynjari, snertiskynjari!! Ég hef ekki hugmynd um hvað hún er að tala um fyrr en ég sé að veskið mitt er orðið hundblautt! Við lágum alveg í krampakasti í gólfinu oskrandi aftur og aftur ; Snertiskynjari, snertiskynjari alveg grenjandi úr hlátri og auðvitað skyldi enginn orð af því sem við vorum að segja hehe.. En þetta var ekki jafn fyndið daginn eftir þegar ég gat ekki kveikt á myndavélinni minni sem ég hafði fengið daginn áður!
Þannig byrjaði sunnudagurinn sem var ekki alveg jafn frábær og hinir 2 dagarnir, það tók mig 3 tíma að sofna því mér var svo hræðilega kalt, ég sofnaði ekki fyrr en kl.10, sama tíma og vekjaraklukkan hringdi því við ætluðum að reyna að eyða sem mestum tíma saman. Mér tókst að sofa í 2 tíma og vaknaði þá alveg grautþunn og orugglega með bullandi hita! Þá mundi ég eftir myndavélinni og hún virkaði ekki, svo ætlaði ég að kíkja á símann minn og þá fattaði ég að ég hafði skrifað pin númerið og oft inn á fostudagskvoldinu að ég þurfti að skrifa inn puk númerið og ég mundi það auðvitað ekki, svo ég hringdi í Lauru og ætlaði að byðja hana um að finna það fyrir mig en þá var hún stodd í Bologna. Frábært! Jæja, hugsaði ég.. dagurinn getur nú ekki orðið verri.. En jæja, ég var næstum því búin að missa af lesinni til Milanó (Þurfti að fara til Mílanó og skipta um lest þar og fara þaðan til Flórens) En ég náði henni og allt í góðu, þangað til á lestastoðinni í Mílanó. Ég átti að taka lest þaðan kl. 18, og alls ekki seinna því ef ég myndi fara seinna myndi ég missa af síðasta strætónum í Flórens.. Ég kíki á tofluna og fatta að ég hef ekki hugmynd um hvaða lest ég á að taka og ég hef bara 10 mínútur, ekki með neinn síma! Svo sé ég Firenze á toflunni og hún lest á að fara kl. 18:30 og það er of seint fyrir mig því þá missi ég auðvitað af strætónum, en svona er þetta. Eg bíð þangað til kl. 18:30 og labba að hliðinu sem lestin á að koma en þá sá ég einhverja allt aðra lest koma þangað og ég varð alveg rugluð, spurði eitthvað fólk um hjálp og þá var mér sagt að ég hefði átt að taka lestina til Róma og vitleysingurinn ég auðvitað búin að missa af henni. Svo ég hljóp niður í miðaafgreiðsluna og fékk að skipta miðanum yfir í kl. 19. Þá komst ég í lestina (fékk reyndar ekki sæti) og þá fatta ég að Nicola ætlaði að sækja mig uppá strætóskýli og ég gat ekki látið þau vita að ég yrði sein því ég var ekki með síma. Ég var alveg með í maganum. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til Flórens var að fara í tíkallasíma og hringja í Ástrósu og láta hana hringja í Lauru og segja að ég væri að fara að taka taxa uppá strætóskýli því ég mundi ekki númerið hjá henni. En þetta endaði allt ágætlega, fyrir utan það að ég þurfti að borga 23 evrur í helvítis taxann!
Mánudagurinn fór í svefn! Ég vann frá 8 til 2, ætlaði að leggja mig frá 5 til 8.. En vaknaði ekki fyrr en mamma hringdi í mig kl. 11, ég hélt að klukkan væri bara svona 7 eða 8 svo þegar ég skellti á ætlaði ég að klæða mig í peysu og kíkja upp. En kíkti þá á klukkuna og klukkan að verða hálf 12! Þá kallaði Laura á mig og sagði að hún hafi kallað á mig í mat en að ég hafi verið sofandi svo ég fór upp og borðaði kvoldmatinn minn þá. En myndavélin lagaðist og ég náði netinu í yndislegu tolvuna mína loksins og þessi dagur var mun betri en sunnudagurinn hehe
Annars er bara miðvikudagur á morgun, ótrúlegt hvernig tíminn flýgur áfram. Helgin mín verður reyndar óspennandi, verð að passa bæði fostudags og laugardagskvold. En helgin eftir það verður skemmtileg því þá kemur Ástrós baby til Flórens! :)
Jæja komið gott í bili.. Eru komnar fult af nýjum myndum á www.myspace.com/saerungudm
Ciao!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2008 | 20:45
3. vikan
Jæja..
Eg trui tvi ekki ad eg se buin ad vera her i 3 vikur, finnst samt eins og eg hafi alltaf verid herna. Erfitt ad utskyra. Tad eru nu bunir ad vera nokkrir erfidir dagar, tar sem mig langadi helst til tess ad pakka nidur og fara heim en tad var nu eigilega bara i fyrstu vikunni og tetta leid bara hja, og svo hefur tad hjalpad rosalega ad geta spjallad vid folkid heima a Skype.
Italska fjolskyldan min er aedisleg. Eg hugsa um Elenu sem er 6 manada alla virka daga og a laugardogum en er bara med Lisu sem er 2ggja ara a laugardogum tvi hun er a leikskola. Svo er eg ad thrifa og hjalpa til a heimilinu lika, er alltaf rosalega dugleg ad trifa uppi en herbergid mitt herna nidri er i rusti, eg tok adeins til i gaer en tad er farid i sama farid :) Folkid a Italiu er olikt folkinu a Islandi, herna talar t.d. enginn ensku eda voda fàir allavega, og teir sem tala einhverja ensku tala hana med svo miklum hreim ad tad er vodalega erfitt ad skilja tau en tess vegna verd eg ad vera dugleg ad laera tungumalid svo eg geti farid ad spjalla vid folkid herna. Um daginn var eg ad fara i skolann, eg var ad fara utur straetònum, ta tekur gomul kona i mig og byrjar ad tala og tala, eg skil audvitad ekki ord af tvi sem hun er ad segja og segi bara ; Si, si... Hun stod tarna orugglega i 5 minutur og aetladi alls ekki ad leifa mer ad fara tò svo ad eg skildi hana ekki og reyndi ad hrista hausinn og segja henni ad eg skildi ekki hvad hun vaeri ad segja, svo reif eg mig fra henni og hljop eins og faetur togudu i burtu hehe. En eg er komin med sma ordaforda, er hraedileg i tvi ad mynda setningar en tad kemur allt med timanum.
Eg er buin ad skoda helling og gera helling. Tegar Olof var herna forum vid t.d. til Bologna og gistum tar eina nott hja fraenku hennar. I Bologna er aedisleg gongugata og fullt af flottum budum svo eg keypti mer kjol og eitthvad smotteri. Svo vorum vid Olof rosalega duglegar ad fara nidri Florens ad skoda allt tar tvi tad er svo otrulega fallegt her. Eg fann rosalega flotta bud sem heitir Penny Lane, en eg tyndi henni og veit ekki hvar hun er. En eg hlyt ad finna hana aftur. Svo forum vid a djammid i Florens sem var rosalega gaman, eg vard reyndar pinu pirrud i endan tvi vid fundum engan taxa, eg var farin ad halda ad vid thyrftum ad bida tangad til straetoarnir byrjudu ad ganga, en svo fundum vid einn eftir ad vera bunar ad standa a sitthvoru gotuhorninu eins og hòrur! Eg for einmitt i dag nidur i midbae i steikjandi hita, for ad skoda inni Domkirkjuna og svona. Svo sa eg eitt rosa spennandi, tad var Serial Killer Show, eda eitthvad svoleidis, eg sa eitthvad um Charles Manson tegar eg labbadi framhja, eg aetla ad skoda tetta.
Eg er bara buin ad fara 3svar i skolann, skròpudum tarna eina vikuna tvi tad var svo mikid ad gera hja okkur ad vid hofdum ekki tima. Tad gengur alltaf betur og betur tar, eg er reyndar eina sem er svona ny og kennarinn talar bara itolsku svo tetta er frekar erfitt. En stràkurinn vid hlidina a mer leyfir mer alltaf ad sja hja ser svo tad er agaett, svo eru lika allir rosalega hjalpsamir tar. Skolinn er tvisvar i viku og verdur tangad til i juni svo tetta verdur fint.
Astros kemur til Italiu a morgun, vid aetlum ad hittast naestu helgi og eg get ekki bedid!!! Aetlum hittast alltaf 2svar i manudi.
Ef eg myndi vinna nokkrar milljonir i lottò ta myndi eg kaupa hus herna i Florens og kaupa flugmida fyrir alla fjolskylduna mina til Italiu og vid myndum eyda jolunum saman herna i fegurdinni. Tad yrdi lika ekki leidinlegt ad geta skroppid alltaf bara yfir til mommu eftir erfidan vinnudag.
En tad er komid nog i bili, eg er buin ad setja inn nokkrar myndir a myspaceid mitt ; www.myspace.com/saerungudm og svo koma fleiri tegar eg fae nyju myndavelina mina naestu helgi :)
Ciao
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.9.2008 | 01:05
Ítalía
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)